Dhar Mann

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Dhar Mann (fæddur 29. maí 1984) er bandarískur viðskiptamaður, þáttagerðamaður og Youtube stjarna. Hann hefur framleitt fjölda stuttmynda sem flestar eru birtar á Youtubesíðu hans og í appi sem hann heldur úti. Myndböndin sem hann framleiðir fjalla um fólk sem er að takast á við hinar ýmsu aðstæður í lífi sínu. Stuttmyndirnar eiga að hafa ákveðinn boðskap með sér en eru oft með grínívafi. Þá hefur hann oft fengið gagnrýni fyrir að gefa ekki raunsæja mynd af þeim aðstæðum sem stuttmyndirnar fjalla um og fyrir að ýkja hluti.