ICIUM

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útsýni úr Kínamúrs-rennibrautinni yfir Dómkirkjuna í Helsinki í ICIUM veturinn 2010-2011.

ICIUM Wonderworld of Ice er vetrargarður [1] í Levi, Finnlandi úr snjó og ís. Garðurinn opnaði fyrst 18. desember 2010[2]. ICIUM sýnir bæði íshöggmyndir og snjólistaverk á svæði sem þekur um einn hektara.

Framkvæmdir[breyta | breyta frumkóða]

Framkvæmdir á aðaljárbrautarstöðinni í Helsinki desember 2010.

ICIUM er byggt af kínverskum íshögglistamönnum [3] frá Harbin borg, þar sem Alþjóðlega ís- og snjóhöggmyndahátíðin hefur verið haldin árlega frá því 1963. Yfir 10.000 rúmmetrar af snjó voru notaðir í framkvæmdirnar árið 2010. Ennfremur var yfir 600 rúmmetum af ís lyft úr Ounasjoki ánni fyrir gerð höggmyndanna.

Höggmyndir í ICIUM[breyta | breyta frumkóða]

Himnahofið

Helstu ICIUM íslistaverkin veturinn 2010-2011 voru:

  • Kínamúrs-rennibrautin. Stærsta verkið, 15 metra á hæð og 80 metrar á lengd. Yfir 5.000 rúmmetrar af snjó fóru í verkið.
  • Dómkirkjan í Helsinki. Hæsta snjóverkið í ICIUM ásamt Kínamúrs-rennibrautinni, 15 metrar á hæð.
  • Aðaljárnbrautarstöðin í Helsinki.
  • Pagóða. Græna pagóðan var hæsta íshöggmyndin í ICIUM, yfir 15 metrar á hæð.
  • Himnahofið.
  • Leikvangurinn í Beijing.
  • Terracotta herinn. Íshöggmyndir af terracotta hermönnum.

Kínverskir alþýðulistamenn[breyta | breyta frumkóða]

Alþýðulistamenn frá Beijing voru einnig í ICIUM til að kynna hefðbundna kínverska alþýðulist, líkt og strávefnað, málun tóbaksflaskna og höggmyndagerð úr deigi.

ICIUM lukkudýrið[breyta | breyta frumkóða]

Pandahúnninn Mingming er lukkudýr ICIUM[4]. Í sínu fyrsta ævintýri reynir Mingming að bjarga heimili sínu frá vondum dreka með hjálp afans og hreindýrsins Niila, hreindýrakálfinum Nina og jólasveininum.

Heimildir[breyta | breyta frumkóða]

  1. „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 3. mars 2011. Sótt 13. október 2011. {{cite web}}: Margir |archivedate= og |archive-date= tilgreindir (hjálp); Margir |archiveurl= og |archive-url= tilgreindir (hjálp)
  2. „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 31. desember 2010. Sótt 13. október 2011. {{cite web}}: Margir |archivedate= og |archive-date= tilgreindir (hjálp); Margir |archiveurl= og |archive-url= tilgreindir (hjálp)
  3. http://www.china.org.cn/travel/2010-12/20/content_21581162.htm
  4. http://www.bjreview.com.cn/exclusive/txt/2010-12/20/content_320100.htm

Tenglar[breyta | breyta frumkóða]