Malmö Arena

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Malmö Arena.
Handbolti í M.A.

Malmö Arena er fjölnota tónleika- og íþróttahöll í Malmö í Svíþjóð. Höllin tekur allt að 13.000 gesti í sæti á íþróttaviðburðum en 15.000 á tónleika. Malmö Arena er heimavöllur sænska íshokkíliðsins Malmö Redhawks og hýsti hún einnig Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árin 2013 og 2024.

Tenglar[breyta | breyta frumkóða]