Trausti Laufdal

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Trausti Laufdal Aðalsteinsson (f. 1. maí 1983 í Reykjavík) er íslenskur tónlistarmaður. Hann er söngvari og gítarleikari hljómsveitanna Lokbrá og Pontiak Pilatus.[1]

Hann byrjaði ferilinn 14 ára í hljómsveinni Kamikazee sem var sett saman í Hólabrekkuskóla fyrir hæfileikakeppnina Skrekk árið 1997. Þar spilaði hann á gítar og söng en hljómsveitin breytti fljótt um nafn eftir keppnina og hlaut nafnið Moðhaus. Moðhaus var undir miklum áhrifum frá hljómsveitum eins og Maus, Botnleðju, Ensími, 200.000 naglbítum, Green Day og svo framvegis. Hljómsveitin tók þátt í Rokkstokk hljómsveitakeppninni í Keflavík árið 1998 og síðan ári seinna í Músíktilraunum þar sem hljómsveitin komst í úrslit og vakti mikla athygli[heimild vantar] þrátt fyrir ungan aldur. Moðhaus lagði upp laupana um aldarmótin.

Í kringum 2000 gekk Trausti til liðs við menningartímaritið Sánd og starfaði þar í ritstjórn og sem penni til ársins 2003 samhliða sem hann sá um tónlistarumfjöllun í unglingatímaritinu Smellur. Á þessum árum vann Trausti sem rótari hjá hljómsveitinni Maus og stundaði einnig nám við Fjölbrautaskólann í Breiðholti.

Á árunum 2000-2002 var Trausti lauslegur meðlimur í hljómsveitinni XXX Rottweilerhundar en gekk svo í lið með Baldvini Albertssyni og Óskari Þór Arngrímssyni í nýstofnuðu hljómsveitina Lokbrá sem söngvari. Lokbrá byrjaði ferilinn í sundlauginni í Mosfellsbæ sem vinahljómsveit þeirra Sigur Rós hafði þá nýverið fjárfest í. Sigur Rós fór hinsvegar fljótt eftir það í tónleikaferðalag með hljómsveitinni Radiohead og því hafði Lokbrá þessa fullkomnu aðstöðu útaf fyrir sig í nokkra mánuði. Þarna þróaði hljómsveitin sitt sánd og fór fljótlega að vekja mikla athygli fyrir spilagleði, brjálaða sviðsframkomu og endalausa spilamennsku út allar trissur.

Á þessum tíma fer hljómsveitin fljótt að geta sér gott orð fyrir kraftmikla og oftar en ekki ófyrirsjáanlega sviðsframkomu. Meðlimir Lokbrá voru bæði háværir og spilaglaðir og sú orka smitaðist hvert sem þeir fóru.

Fyrsta breiðskífa þeirra kom út árið 2004 og hét Army Of Soundwaves. Hún var mestmegnið hljóðrituð í Klink og Bank, en söngurinn var tekinn upp í Blackheath í London. Fyrsta lagið sem kom út af plötunni var „Nosirrah Egroeg“, sem að var óður til hljómlistamannsins George Harrison sem þá var nýlátinn. Lagið vakti mikla lukku og hljómaði mikið á öldum ljósvakans , og kom Lokbrá á kortið í Íslensku tónlistarsenunni.

Á þessum tíma var Lokbrá gríðarlega virk í spilamennsku út um allt land og þá sérstaklega á skemmtistaðnum Grand Rokk þar sem hljómsveitin var orðin einskonar húsband. Þar spiluðu þeir sérstaklega mikið með vinaböndum sínum, Jan Mayen, Ælu, Noise, Dáðadrengjum og Coral.

Árið 2007 semur hljómsveitin sína aðra breiðskífu, rokk söngleikinn Fernandó. Platan var sándið sem Lokbrá hafði alltaf leitað af, kraftmikið og lifandi, undir miklum áhrifum frá Bítlunum, Led Zeppelin, Trúbrot og Radiohead svo einhverjir séu nefndir. Platan var hljóðrituð á einni helgi. Upptökurnar komu einstaklega vel út, en skömmu síðar þegar meðlimir hljómsveitarinnar ætla að klára plötuna þá kemur það í ljós að harði diskurinn sem að platan var tekin upp á hafði hrunið og hafði það einstaklega mikil áhrif á meðlimi.

Bandið hætti störfum skömmu síðar og fóru meðlimir allir í sína áttina. Mörgum árum seinna er harði diskurinn sendur út til Belgíu þar sem að einhver snillingur nær að finna alla hljóðfælana, nema hvað að það þurfti að raða þeim öllum upp á nýtt og því fóru drengirnir í það að pússla saman lögunum.

Þegar lögunum var komið loks saman fengu Lokbrá, sem að þá voru í raun ekki starfandi, þá Svein Helga Halldórsson og Friðrik Helgason til þess að hljóðrita og hljóðblanda plötuna. Síðan þá hefur ekkert spurst til Fernandó nema hvað að lagið “Koss Mjallhvítar” var gefið út og er það eina útgefna lagið af þessum söngleik.

Árið 2008 hóf Trausti nám við Hljóðvinnsluskóla Þorvaldar Bjarna og stúderaði þar hljóðvinnslu og í raun allt sem kemur að tónlist og hljóðupptökum.

Þar kynnist hann tónlistarmanninum Eyþóri Inga Gunnlaugssyni og sömdu þeir og hljóðrituðu saman lagið Lífsmynd (Hún mun aldrei gleyma þér). Ári seinna útskrifast Trausti sem hljóðmaður og kemur sér upp síðu eigin hljóðveri heima hjá sér. Hann byrjaði að safna gömlum og sjalgæfum hljóðvinnslugræjum, og þá sérstaklega míkrafónun framleiddir 1950-1980. Allt var það partur af því að skapa einstakan hljóm sem að bæði má kalla gamaldags og framúrstefnulegan. Þarna byrjar hann að hljóðrita sjálfur sitt eigið efni, ásamt því að búa til síkadelíska hljóðveggi og framúrstefnuleg lög og kallaði það oft hljóðvísindi.

Árið 2009 setur hann saman hljómsveitina Pontíak Pílatus. Meðlimir voru þeir Óskar Þór, Aðalsteinn Laufdal, Gunnar Skjöldur og Þór S Carlsson. Hljómsveitin spilaði um víða völl en var þó skammlíf. Sama ár hefur Trausti samstarf við Keflvíska rapparann Kaftein Hafstein. Þeir settu saman hljómsveitina Kafteinn Hafsteinn og Áhöfnin. Verkefnið var einhverskonar rokk / rapp blanda , sem var eitthvað sem ekki hafði verið gert áður í Íslensku hipphoppi. Hljómsveitin hljóðritaði tvö lög í Gróðurhúsinu, Tálkvendið og Allt sem við gerum áður en hljómsveitin lagði upp laupana eftir stuttan feril.

En þeir Kafteinn Hafsteinn og Trausti héldu áfram sínu samstarfi og gáfu út árið 2000 lögin Von og Kynnist Mér. 2010 kemur út hljómplatan Evu sem Gísli “Gímaldin” Magnússon samdi við ljóð Evu Hauksdóttir. Á þeirri plötu syngur Trausti þrjú lög.

Á þessum tíma byrjar Trausti að vinna náið með Sveini Helga Halldórssyni sem var þá bassaleikari í hljómsveitunum Ælu og Jan Mayen. Þeir félagar smíðuðu saman hljóðver sem gekk undir nafninu Stúdíó F.I.T.L. Í því hljóðveri byrjar Trausti að setja saman sína fyrstu plötu sem sóló listamaður í nánu samstarfi við Svein.

2014 kemur út fyrsta sóló plata Trausta sem hét einfaldlega Trausti Laufdal. 2018 kom út önnur sóló plata Trausta sem kallast The Alice Sessions

Tilvísanir[breyta | breyta frumkóða]