Fara í innihald

Vindhælishreppur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Vindhælishreppur á árunum 1939-2002
Vindhælishreppur til ársins 1938

Vindhælishreppur var hreppur vestan megin á Skaga í Austur-Húnavatnssýslu, kenndur við bæinn Vindhæli á Skagaströnd.

Upphaflega teygði hreppurinn sig eftir allri Skagaströnd að Laxá, en 1. janúar 1939 var honum skipt í þrennt. Nyrsti hlutinn varð að Skagahreppi, miðhlutinn að Höfðahreppi, en syðsti hlutinn sunnan Hrafnsár hét áfram Vindhælishreppur.

Vindhælishreppur sameinaðist Skagahreppi á ný 9. júní 2002, þá undir nafninu Skagabyggð.

  Þessi Íslandsgrein sem tengist landafræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.